25 september 2019Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar
Nr. 183/2019 - Úrskurður
Staðfest ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um synjun bóta úr sjúklingatryggingu. Úrskurðarnefnd velferðarmála taldi að fyrirliggjandi gögn bentu ekki til annars en að rannsókn og meðferð kæranda hafi verið hagað eins vel og unnt hefði verið og í samræmi við þekkingu og reynslu á viðkomandi sviði. Þá taldi nefndin að betri árangur hefði ekki náðst með öðru meðferðarúrræði.