09 febrúar 2021Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema
6/2020 A gegn Háskóla Íslands
Mál þetta hófst með kæru A, dags. 30. september 2020, sem barst áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema þann 8. október s.á. Kærð er ákvörðun deildarforseta Stjórnmálafræðideildar HÍ að gefa kæranda núll í einkunn í námskeiðinu ASK201F “The Role and Policymaking of International Institutions” og þeirri ákvörðun forseta Félagsvísindasviðs HÍ að áminna kæranda.