10 desember 2020Kærunefnd útlendingamála
Nr. 419/2020 Úrskurður
Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda að því er varðar umsókn hans um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða er staðfest. Felld er úr gildi ákvörðun um brottvísun og endurkomubann. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.