24 apríl 2023
Garðabær tekur á móti allt að 180 flóttamönnum
Garðabær tekur á móti allt að 180 flóttamönnum samkvæmt samningi sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, undirrituðu í dag. Þetta er ellefti samningurinn sem gerður er um samræmda móttöku flóttafólks síðan í nóvember síðastliðinn.