23 september 2016
Hljóðdemparar leyfðir á stærri veiðiriffla með breytingu á reglugerð
<p>Ólöf Nordal innanríkisráðherra hefur undirritað breytingu á reglugerð um skotvopn, skotfæri og fleira og er breytingin þess efnis að leyfðir verða svonefndir hljóðdemparar á stærri veiðiriffla. Með notkun þeirra minnkar hávaðinn niður fyrir sársaukamörk sem dregur úr hættu á heyrarskemmdum og er hér því um öryggisatriði að ræða. Engu að síður þurfa veiðimenn að nota heyrnarhlífar.</p>