01 október 2020
127 milljarða sókn í mennta- og menningarmálum
Fjárveitingar hækka um 11% milli ára og verða 127,2 milljarðar kr. á næsta ári, samkvæmt frumvarpi til fjárlaga sem lagt var fram í dag. Ríflega 51 milljarður kr. fer til háskólastigsins, 38 milljörðum kr. verður veitt til framhaldsskólastigsins og 17,6 milljörðum kr. til menningar-, íþrótta og æskulýðsmála.