30 júní 2021
Ráðherrafundi NORDEFCO lokið
Staða og framvinda samstarfsverkefna, samstarfið við Bandaríkin, fjölþáttaógnir og horfur í alþjóðamálum voru efst á baugi ráðherrafundar í í norræna varnarsamstarfinu (NORDEFCO) sem lauk í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra segir fundinn staðfesta hversu styrkum fótum samstarfið standi.