14 janúar 2011
Rýnifundi um mennta- og menningarmál lokið
Rýnifundi um 26. kafla samningaviðræðna við Evrópusambandið, mennta- og menningarmál, lauk í Brussel í dag. Ekki var rætt um undanþágur, aðlaganir eða sérlausnir, enda tekur Ísland nú þegar þátt í samstarfi og áætlunum ESB á sviði menntamála, menningarmála og æskulýðsmála á grundvelli EES-samningsins.