19 september 2017Alþingiskosningar verða 28. október næstkomandiKosið verður til Alþingis laugardaginn 28. október næstkomandi. Þetta kemur fram í forsetabréfi um þingrof og almennar kosningar sem birt var á vef Stjórnartíðinda í gær.
19 september 2017700/2017. Úrskurður frá 11. september 2017Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að öllum gögnum er tengdust ákvörðun sveitarfélags um framkvæmdaleyfi vegna lagningar Kröflulínu 4. Leyst var úr rétti kæranda til aðgangs að gögnunum á grundvelli meginreglu 5. gr. laga 23/2006 um upplýsingarétt almennings um umhverfismál. Ekki var fallist á að gögnin væru vinnugögn enda höfðu þau borist á milli utanaðkomandi sérfræðings og sveitarfélagsins.…
19 september 2017703/2017. Úrskurður frá 11. september 2017Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að þremur lögregluskýrslum um föður kæranda á grundvelli laga um opinber skjalasöfn nr. 77/2014. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi kæranda ekki hafa einstaka hagsmuni umfram aðra að fá aðgang að skýrslunum. Var því fallist á það með Þjóðskjalasafni Íslands að rétt hafi verið að leysa úr beiðni kæranda á grundvelli V. kafla laga nr.…
19 september 2017704/2017. Úrskurður frá 11. september 2017<p>Deilt var um aðgang að umsóknargögnum umsækjanda um uppreist æru. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst ekki á að umsókn viðkomandi umsækjanda félli í heild sinni undir undanþáguákvæði 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012. Yrði því að taka afstöðu til þess hvort einstök gögn málsins kynnu að geyma upplýsingar um einkahagi sem óheimilt væri að afhenda samkvæmt 9. gr. upplýsingalaga.…
19 september 2017705/2017. Úrskurður frá 11. september 2017Deilt var um aðgang kæranda að upplýsingum sem afmáðar höfðu verið úr sálfræðilegri greinargerð sem embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu lét útbúa í tilefni af kvörtun kæranda um meint einelti í sinn garð. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi, með vísan til 3. mgr. 14. gr.…
19 september 2017701/2017. Úrskurður frá 11. september 2017Staðfest var synjun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins á beiðni kæranda um aðgang að skýrsludrögum vegna úttektar Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunarinnar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál féllst á það með ráðuneytinu að líta mætti á skýrsludrögin sem „samskipti við fjölþjóðastofnun“ í skilningi 2. tl. 10. gr. upplýsingalaga.…
19 september 2017702/2017. Úrskurður frá 11. september 2017Synjun úrskurðarnefndar lögmanna á beiðni kæranda um aðgang að gögnum í máli tiltekins lögmanns var felld úr gildi og málinu vísað til úrskurðarnefndarinnar til nýrrar meðferðar. Synjun úrskurðarnefndar lögmanna var byggð á því að nefndinni væri óheimilt á grundvelli 9. gr. upplýsingalaga að upplýsa hvort fyrirliggjandi væru gögn er heyrðu undir beiðni kæranda.…
18 september 2017Drög að reglugerð um tilkynningu atvika í almenningsflugi til umsagnarSamgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir nú til umsagnar drög að reglugerð um tilkynningu atvika í almenningsflugi sem og greiningu á og eftirfylgni með þeim. Unnt er að senda ráðuneytinu umsagnir til 2. október næstkomandi á netfangið [email protected].
18 september 2017Ýmsar tillögur í skýrslu Byggðastofnunar um stöðu sauðfjárræktar haustið 2017Byggðastofnun hefur skilað samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra greiningu á stöðu sauðfjárræktar og sauðfjárbænda sem hann óskaði eftir í sumar. Óskaði ráðherra eftir mati á stöðunni á svæðum þar sem kinda- og lambakjötsframleiðsla er mikilvæg landsbyggðinni og mati á áhrifum mikillar lækkunar á afurðaverði sem fulltrúar bænda hafa spáð fyrir um.
18 september 2017Ráðstefna um heimilisofbeldi 4. októberJafnréttisstofa boðar til ráðstefnu um heimilisofbeldi 4. október næstkomandi. Fjallað verður um reynslu af þverfaglegri samvinnu í heimilisofbeldismálum og um þá jaðarhópa sem eru í mestri hættu á að verða þolendur heimilisofbeldis.
18 september 2017Ministry for Foreign AffairsRestored honour vs. pardoning<p>In the last few days there has been widespread misunderstanding in international media of the Icelandic term “uppreist æru” (restored honour). </p>