23 desember 2019
Gunnar Jakobsson skipaður varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika
Forsætisráðherra hefur á grundvelli niðurstöðu lögbundinnar hæfnisnefndar og að fenginni tilnefningu fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 92/2019, um Seðlabanka Íslands, skipað Gunnar Jakobsson, lögfræðing, í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika til fimm ára frá og með 1. mars 2020.