01 febrúar 2016
Forsætisráðherra heimsótti Rauða krossinn og flóttamannabúðir í Líbanon í dag
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, hóf daginn í Líbanon á því að funda með Georges Kettaneh, framkvæmdastjóra Rauða krossins í Líbanon, og heimsótti strax í framhaldinu eina af sjö svonefndum heilsugæslum á hjólum sem Íslendingar hafa styrkt.