19 febrúar 2021
Kristján Þór boðar til fundar um landbúnaðarkerfi Bretlands eftir Brexit
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til fundar um breytingar á landbúnaðarkerfi Bretlands eftir útgöngu úr Evrópusambandinu. Á fundinum mun Torfi Jóhannesson, doktor í búvísindum og starfsmaður Norrænu ráðherranefndarinnar, fara yfir þær breytingar sem boðaðar hafa verið og í kjölfarið fara fram umræður.