13 mars 2014
Fyrirhuguð breyting á starfsaldursmörkum heilbrigðisstarfsfólks
<p>Heilbrigðisstarfsmönnum verður heimilt að veita heilbrigðisþjónustu á eigin starfsstöð til 75 ára aldurs, með möguleika á framlengingu, samkvæmt frumvarpi heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Þá munu áfengis- og vímefnaráðgjafar endurheimta starfsheiti sitt verði frumvarpið að lögum.</p>