21 nóvember 2002
Vestnorræn handverkssýning í Laugardalshöll.
Dagana 20. - 24. nóvember stendur yfir í Laugardalshöll Vestnorræn handverkssýning. Þetta er einn stærsti liðurinn í vestnorrænu samstarfi ársins 2002, unnið í samvinnu við aðila í Færeyjum og á Grænlandi. Sýnendur eru um 140 talsins, þar af um 80 erlendir frá 12 löndum, allt frá Kanada í vestri til Finnlands í austri. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra opnaði sýninguna formlega í gær, 20. nóvember.…