27 ágúst 2015
37% makrílstofnsins í íslenskri lögsögu - samningsstaða Íslands styrkist
<p>Aldrei hefur mælst meira af makríl í íslenskri efnahagslögsögu en í nýloknum sameiginlegum makrílleiðangri Færeyinga, Íslendinga, Norðmanna og Grænlendinga. Heildarvísitala makríls á svæðinu sem mælingin náði yfir var metin um 7,7 milljón tonn, þar af voru tæp 2,9 milljón tonn innan íslenskrar efnahagslögsögu eða rúm 37% af heildarvísitölunni.…