26 apríl 2017
Malaví meðal þriggja Afríkuríkja sem prófa bóluefni gegn malaríu
<p>Fyrsta bóluefnið gegn malaríu verður prófað í þremur Afríkuríkjum á næsta ári, Gana, Kenía og Malaví. Eftir áratugalangar rannsóknir var greint frá því fyrir tveimur árum að tekist hefði að þróa mótefni gegn malaríu (mýrarköldu) og á næsta ári er komið að því að reyna á notagildi RTS,S bóluefnisins.</p>