08 janúar 2016
Skýrsla stýrihóps um framkvæmd EES-samningsins: Þunginn í vinnu stjórnvalda verði færður framar í ferlið.
<p>Stýrihópur um framkvæmd EES-samningsins hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sem kynnt var í ríkisstjórn í morgun. Þar kemur fram að meginþunginn í vinnu stjórnvalda sé við innleiðingu laga og reglna, en síður við að fylgjast með þegar reglurnar eru samdar á vettvangi Evrópusambandsins (ESB).</p>