02 febrúar 2023
Samstarfsverkefni um orkuskipti og orkutengda nýsköpun
Samstarfsverkefni á grunni hringrásarhagkerfis, orkuskipta og nýsköpunar á Austurlandi, sem hlotið hefur nafnið Eygló, var stofnað formlega í dag. Skrifað var undir samstarfssamning þess efnis í Fljótsdalsstöð milli umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, Austurbrúar, og Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og Landsvirkjunar.