17 mars 2016
Markaðsverkefni um kynningu á íslenska hestinum - Horses of Iceland
<p>Samfélag íslenska hestsins hefur tekið höndum saman um markaðsverkefni til að auka verðmætasköpun sem byggir á íslenska hestinum, styrkja ímynd hans í vitund fólks um allan heim og byggja upp sterkt vörumerki undir heitinu „Horses of Iceland“. Í dag var undirritað samkomulag um fjármögnun og þátttöku fjölmargra aðila í verkefninu næstu fjögur árin.</p>