15 febrúar 2017
Neyðarástandi lýst yfir í Kenía vegna yfirvofandi hungursneyðar
<p>Síðustu mánuði hafa reglulega birst fréttir um alvarlegar öfgar í
veðurfari í sunnanverðri Afríku, flestar tengdar langvarandi þurrkum en
einnig fregnir af skyndilegu úrfelli og flóðum í framhaldinu. Í
samstarfsríkjum Íslendinga í alþjóðlegri þróunarsamvinnu, Malaví,
Mósambík og Úganda, eru ýmist flóð eða þurrkar en hvoru tveggja veldur
spjöllum á landi og uppskerubresti.</p>