12 október 2007
Ræða umhverfisráðherra á Umhverfisþingi
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra flutti ávarp við setningu Umhverfisþings í dag. Þar kom m.a. fram að hún hafi óskað eftir því þrjú ný svæði verði tekin inn á skrá Ramsar-samningsins um vernd votlendissvæða. Þessi nýju Ramsar-svæði eru: Breiðafjörður, Guðlaugs- og Álfgeirstungur í hálendinu sunnan Skagafjarðar, og Eyjabakkar norðan Vatnajökuls.