03 mars 2020
Opinn kynningarfundur á Egilsstöðum um Hálendisþjóðgarð
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, kynnir áform um stofnun Hálendisþjóðgarðs á opnum fundi á Egilsstöðum fimmtudaginn 5. mars klukkan 20:00. Fundurinn er sá síðasti af átta í röð kynningarfunda vítt og breitt um landið.