03 september 2019
Work in Iceland upplýsingagáttin opnuð
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar opnaði í dag nýjan upplýsingavef, Work in Iceland.
Vefurinn er heildstæð upplýsingagátt á ensku og hefur það að markmiði að kynna Ísland sem ákjósanlegan stað til búsetu og vinnu og ekki síst til að laða erlenda sérfræðinga til Íslands í sérfræði- og hátæknistörf.