12 desember 2015
Parísarsamkomulagið í höfn
<p>Nýtt samkomulag í loftslagsmálum náðist í París í dag og var samþykkt með lófataki. Í samkomulaginu er í fyrsta sinn kveðið á um að öll ríki skuli bregðast við til þess að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda, takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga og tryggja umtalsvert fjármagn til grænna lausna og aðstoð við ríki sem verða verst úti í breytingum.</p>