01 febrúar 2023
Vindorkuhópur skilar verkefni sínu í áföngum
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur fallist á beiðni starfshóps um málefni vindorku, sem ráðherra skipaði í sumar, að skila verkefninu í áföngum. Ráðherra greindi frá þessu á ríkisstjórnarfundi í morgun, en hópurinn átti að skila niðurstöðum sínum og drögum að lagafrumvarpi 1. febrúar.