12 júlí 2019
Ísland áberandi á sjávarútvegssýningunni Global Fishery Forum í St. Pétursborg
Berglind Ásgeirsdóttir, sendiherra, tók þátt í sjávarútvegssýningunni Global Fishery Forum, sem fór fram í St. Pétursborg 10-12 júlí. Þetta er í þriðja sinn sem slík ráðstefna fer fram. Um er að ræða annars vegar ráðstefnu og hins vegar sýningu. Fulltrúar þrettán íslenskra fyrirtækja tóku þátt í sýningunni og voru liðlega þrjátíu Íslendingar mættir til þátttöku.…