21 apríl 2010
Ræða forsætisráðherra á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins
<p>Í ræðu sinni á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins sem haldinn var í dag hvatti Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, samtökin til að koma aftur að stöðugleikasáttmálanum. Þá fjallaði hún einnig um hvað einkenna þurfi nýtt bankakerfi, á hvaða grunni atvinnulífið eigi að byggjast og hvernig umsókn að ESB sé óaðskiljanlegur hluti af endurreisn íslensks efnahagslífs.</p>