21 september 2023
Fjármögnunarlíkan háskóla gert gagnsætt með árangurstengdri fjármögnun
Árangurstengd fjármögnun háskóla leggur áherslu á samfélagslegt hlutverk háskóla, gæði kennslu og rannsóknir með fjölbreyttum hvötum og mælikvörðum. Með nýju fjármögnunarlíkani verða langþráðar breytingar, en bæði háskólarnir og nemendur hafa lengi kallað eftir endurskoðun kerfisins.