03 febrúar 2014
Norðurlönd taka þátt í loftvarnaræfingu á Íslandi
Loftvarnaræfing NATO, Iceland Air Meet 2014, hófst
með formlegum hætti í morgun. Æfingin er haldin samhliða reglubundinni
loftrýmisgæsluvakt sem Norðmenn sinna. Samstarfsríki NATO, Svíþjóð og Finnland, taka þátt í æfingunni en sinna ekki
loftrýmisgæsluverkefnum.