24 apríl 2013
Tillögur starfshóps um skattamál fyrirtækja
<p>Starfshópur sem Katrín Júliusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, skipaði um skattamál fyrirtækja, hefur skilað áfangaskýrslu. Hlutverk hópsins er að leita leiða til einföldunar í skattframkvæmd gagnvart fyrirtækjum og sníða af mögulega vankanta í framkvæmd en hvorki að auka verulega né draga úr tekjum ríkissjóðs.</p>