01 apríl 2015
Fyrstu skrefin í einföldun regluverks í ferðaþjónustu; skráning heimagistingar einfölduð
<p>Einstaklingum, hjónum og sambúðarfólki verður heimilt að leigja út lögheimili sitt auk einnar annarrar fasteignar í allt að átta vikur á ári samkvæmt frumvarpi sem Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur lagt fyrir Alþingi til breytinga á lögum nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.</p>