23 janúar 2023
Stöðuskýrsla um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess
Stöðuskýrsla hefur verið birt um framfylgd þingsályktunar um áætlun fyrir árin 2019-2022 um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess. Aðgerðaáætlunin tekur til ofbeldis í margþættri mynd og má þar nefna líkamlegt ofbeldi, kynferðislegt, andlegt og kynbundið ofbeldi. Af 30 aðgerðum er 18 lokið, 11 eru í vinnslu eða lokið að hluta og ein er í undirbúningi.