17 október 2022
Fyrirkomulag rjúpnaveiða 2022
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest að veiðitímabil rjúpu verður frá 1. nóvember - 4. desember í ár. Heimilt verður að veiða rjúpu frá föstudegi til þriðjudags, frá kl. 12 þá daga sem veiði er heimil og skal veiði eingöngu standa yfir á meðan að birtu nýtur.