22 ágúst 2006
Málþing um markaðslaun og launajafnrétti
Málþing um markaðslaun og launajafnrétti verður haldið föstudaginn 25. ágúst á Bifröst. Þar fjalla fjórir sérfræðingar á sviði jafnréttismála um viðfangsefnið út frá mismunandi sjónarhornum. Málþingið, sem verður á ensku, er haldið á vegum Rannsóknaseturs vinnuréttar og jafnréttismála við Viðskiptaháskólann á Bifröst.