14 desember 2011
Mál nr. 126/2011
<p>Kærandi telur að við endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði eigi einnig að taka tillit til láns hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna, sem tekið hafi verið í tengslum við kaup kæranda á íbúð hans, en umrætt lán er með veði í fasteign sem er ekki í eigu kæranda. Heimild til niðurfærslu tekur eingöngu til áhvílandi veðkrafna Íbúðalánasjóðs. Staðfest.</p>