18 mars 2016
Opinber heimsókn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra og annarra leiðtoga Norðurlandanna til Bandaríkjanna 13. maí 2016
<p>Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, hefur þegið boð Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, um að sækja leiðtogafund Norðurlandanna og Bandaríkjanna, sem haldinn verður í Hvíta Húsinu í Washington 13. maí 2016. Um er að ræða opinbera heimsókn leiðtoga Norðurlandanna með viðhafnarkvöldverði þeim til heiðurs. </p>