08 júní 2023
Samfélag og samskipti gagnaglímukappa efld með Netöryggiskeppni Íslands
Landskeppni Gagnaglímunnar fór fram í liðinni viku en tilgangur netöryggiskeppninnar er að ýta undir menntun og þjálfun í tölvuöryggismálum hér á landi til að mæta þeirri miklu vá sem tölvuárásir geta valdið. Elvar Árni Bjarnason bar sigur úr býtum í keppninni þriðja árið í röð, Kristinn Vikar Jónsson hafnaði í öðru sæti og Dagur Benjamínsson í því þriðja.