03 janúar 2013
Bætur almannatrygginga hækka um 3,9%
<p>Tryggingastofnun ríkisins hefur tekið saman yfirlit með upplýsingum um hækkanir á greiðslum til lífeyrisþega um áramótin. Fjárhæðir bóta almannatrygginga hækka um 3,9%. Þar með eru taldar lífeyrisgreiðslur og greiðslur vegna félagslegrar aðstoðar, s.s. umönnunargreiðslur, mæðra- og feðralaun, dánarbætur og heimilisuppbót.</p>