05 október 2023
Frumvarp til styrkingar stöðu framleiðenda búvara
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur birt frumvarp um framleiðendafélög á samráðsgátt stjórnvalda. Þar er lagt til að fyrirtækjum sem eru í eigu eða undir meirihlutastjórn frumframleiðenda verði heimilt að eiga með sér samstarf um afmarkaða þætti líkt og tíðkast í nágrannalöndum.