01 ágúst 2006
Vinnuumhverfi flugumferðastjóra verði skoðað
<p></p>
<p align=justify>Sturla Böðvarsson átti í morgun fundi með fulltrúum Flugmálastjórnar Íslands og Félags íslenskra flugumferðarstjóra þar sem fjallað var um vandkvæði sem upp hafa komið meðal annars varðandi nýtt vaktakerfi í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík. Ákveðið var að fá utanaðkomandi aðila til að gera úttekt á vinnuumhverfi flugumferðarstjóra á Íslandi.</p>