22 september 2021
Sérhæfð þjónusta í geðhjúkrunarrýmum Áss og Fellsenda verður efld
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að styrkja geðheilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga sem dvelja í geðhjúkrunarrýmum á Ási, dvalar- og hjúkrunarheimili í Hveragerði og Hjúkrunarheimilinu Fellsenda í Dölum. Þetta er gert í samræmi við mat embættis landlæknis sem telur að styrkja þurfi faglega geðheilbrigðisþjónustu á heimilunum þar sem búa einstaklingar með flókna þjónustuþörf á þessu sviði.…