15 júní 2022
Utanríkisráðherrar Norðurlanda og Afríkuríkja funduðu í Helsinki
Tuttugasti fundur utanríkisráðherra Afríkuríkja og Norðurlanda fór fram í Helsinki í gær. Friðar- og öryggismál, þar á meðal áhrif stríðsins í Úkraínu, sjálfbær samfélög, baráttan við loftslagsbreytingar og aukið samstarf Norðurlanda og Afríkuríkja í alþjóðakerfinu voru meðal helstu umræðuefna ráðherranna.