06 janúar 2023
Fléttan: Nordverse Medical Solutions innleiðir öruggari meðferðir ávanabindandi lyfja
Nordverse Medical Solutions, í samstarfi við Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, hlýtur styrk úr Fléttunni til verkefnis sem snýr að innleiðingu stafræns meðferðarkerfis í heilsugæslu til að tryggja sem öruggustu meðferð ópíóíða og benzodiazepina, auka þjónustu við skjólstæðinga og samhliða því auka skilvirkni og tímasparnað fyrir heilbrigðisstarfsfólk.