03 mars 2017
Miðstöð fyrir þolendur ofbeldis opnuð í Bjarkarhlíð
<p>Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, var formlega opnuð í gær. Miðstöðin er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, velferðarráðuneytis, innanríkisráðuneytis, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Samtaka um kvennaathvarf, Stígamóta, Drekaslóðar, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Kvennaráðgjafarinnar. Hún er rekin sem þróunarverkefni til tveggja ára.</p>