15 október 2015
Loftslagsvænar lausnir Norðurlandanna í öndvegi í París
<p>Loftslagsvænar lausnir frá Norðurlöndunum eru í öndvegi á vörusýningunni World Efficiency, sem lýkur í dag í Porte de Versailles í París. Sýningin er haldin rétt rúmum sex vikum fyrir upphaf ríkjaráðstefnu aðildarríkja loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, COP21, og gefur þar að líta ýmsar lausnir fyrirtækja sem hjálpa við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.</p>