15 júní 2011
Rýnifundi um samgöngumál lokið
Rýnifundi um samgöngumál sem er innihald 14. kafla samningaviðræðna við
Evrópusambandið, lauk í Brussel 9. júní sl. Á fundinum, sem var sá
síðari af tveimur, báru sérfræðingar Íslands og ESB saman löggjöf í
þessum samningskafla, en hann fellur undir EES-samninginn. Fyrir
íslenska hópnum fór Harald Aspelund, formaður samningahópsins.