25 september 2003
Sænsk- íslensk viðskiptaráðstefna í Stokkhólmi.
<p>Þann 8. október næstkomandi verður haldin sænsk-íslensk viðskiptaráðstefna í Stokkhólmi. Á ráðstefnunni munu íslenskir og sænskir aðilar, sem reynslu hafa af viðskiptum í báðum löndunum, miðla af reynslu sinni og velta upp leiðum til að efla viðskiptatengsl landanna. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, mun setja ráðstefnuna. </p>