22 janúar 2009
Útblásturskvóti og gjaldamál rædd á fundi samgönguráðherra með flugrekendum
<p align=justify>Kristján L. Möller átti í dag fund með fulltrúum flugrekenda og þeirra opinberu aðila sem sinna rekstri flugvalla og flugleiðsöguþjónustu. Nærri 30 manns sátu fundinn þar sem skipst var á skoðunum um ýmsa þætti í flugrekstri svo sem gjaldamál, útblásturskvóta, loftferðasamninga og innanlandsflug svo nokkuð sé nefnt.<br></p>