16 maí 2019
Félags- og barnamálaráðherra fundaði með félagsmálastjórum af öllu landinu
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, átti fund með félagsmálastjórum allra sveitarfélaga landsins í Skagafirði í dag. Þar var farið ítarlega yfir vinnu er varðar málefni barna sem fer fram í félagsmálaráðuneytinu um þessar mundir, en hún snýr meðal annars að heildarendurskoðun barnaverndarlaga og endurskoðun á félagslegri umgjörð og stuðningi við börn á Íslandi.