16 nóvember 2006
Félagsmálaráðherra leggur fram á Alþingi skýrslu um Alþjóðavinnumálaþingin í Genf 2005 og 2006
Ný alþjóðasamþykkt um vinnuskilyrði farmanna sem birt er í skýrslu félagsmálaráðherra um Alþjóðavinnumálaþing í Genf hefur að geyma ákvæði um lágmarksréttindi að því er varðar aldur farmanna, vinnutíma, hvíldartíma, aðbúnað, fæði, vistarverur og hollustuhætti um borð í skipum öðrum en fiskiskipum.